Bárusalur er er nýr og spennandi veislu-, sýninga- og fundarsalur hjá Brass Kitchen & Bar. Bárusalur rúmar 50 manns í standandi veislum og 40 manns til borðs. Hægt er að ganga út á skjólsæla og notalega verönd beint úr salnum þar sem eru útihúsgögn. Salurinn er búinn hljóðkerfi fyrir tal, tónlist, skjávarpa og sýningartjaldi. Veitingar eru frá Brass Kitchen & Bar og úrvalið er fjölbreytt og á góðu verði. Bárusalur hentar vel fyrir fyrirtækjahópa, fermingar, jólaboð, afmæli, reunion, útskriftaveislur, kynningar o.fl. Mögulegt er að vera með salinn frá 11:30 - 23:30 á kvöldin, en eftir það er upplagt að kynna sér næturlífið við Laugaveginn. Ekki er leyfilegt að koma með eigin veitingar í salinn.
Laugavegur 66, Reykjavík